Icelandic nytjaleyfishafar
Með sérstökum nytjaleyfissamningum hafa nytjaleyfishafar Icelandic Trademark Holding ehf. rétt á að nota Icelandic vörumerkið á þeim markaðssvæðum sem getið er um í nytjaleyfissamningi.
Nytjaleyfishafar vinna á grundvelli viðmiðunarreglna fyrir Icelandic vörumerkið (e. Brand Manual) og þurfa að uppfylla skilyrði sem lúta m.a. að íslenskum uppruna, ströngum gæðakröfum og gæðaeftirliti, rekjanleika, sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
Icelandic nytjaleyfishafar:
High Liner Foods America
High Liner er leiðandi í sölu frystra sjávarafurða í Norður Ameríku. Fyrirtækið selur m.a. hágæða íslenskar sjávarafurðir til smásala og veitingahúsa undir merkjum Icelandic í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
SJÁ NÁNAR
Iceland Seafood International
Iceland Seafood er leiðandi í útflutningi sjávarafurða frá Íslandi til allra helstu markaðssvæða heims. Iceland Seafood selur hágæða íslenskar afurður undir merkjum Icelandic á mörkuðum í Norður-, Mið-, og Suður Evrópu.
SJÁ NÁNAR
Icelandic Asia
Icelandic Asia er leiðandi í útflutningi frystra sjávarafurða frá Íslandi til markaða í Asíu. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í Asíu í 30 ár og er þar þekkt fyrir hágæða íslenskar sjávarafurðir.
SJÁ NÁNAR
High Liner Foods
High Liner Foods er leiðandi í sölu frystra sjávarafurða í Norður Ameríku. Fyrirtækið selur m.a. hágæða íslenskar sjávarafurðir til smásala og veitingahúsa undir merkjum Icelandic í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Iceland Seafood International
Iceland Seafood er leiðandi í útflutningi sjávarafurða frá Íslandi til allra helstu markaðssvæða heims. Sala fyrirtækisins nær til ferskra, landfrystra, sjófrystra, saltaðra, léttsaltaðra og þurrkaðra afurða. Iceland Seafood selur hágæða íslenskar afurðir undir merkjum Icelandic á mörkuðum í Norður-, Mið- og Suður Evrópu.
Icelandic Asia
Icelandic Asia er leiðandi í útflutningi frystra sjávarafurða frá Íslandi til markaða í Asíu. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í Asíu í 30 ár og er þar þekkt fyrir hágæða íslenskar sjávarafurðir. Icelandic Asia er með starfsstöðvar í Japan, Kína og á Íslandi sem tryggir viðskiptavinum hvarvetna örugga og góða þjónustu.